UM SÍÐUNA
NFL á íslensku
Íslensk síða um ameríska fótboltann: líkur fyrir hvern leik, staðan, úrslitakeppnin, leikmenn, spáleikur og greinar, allt á íslensku og íslenskum tíma.
Spárnar
Líkurnar koma úr Elo-líkani sem metur styrk hvers liðs út frá öllum leikjum frá 1999. Það var prófað á 3.027 leikjum 2015-2025 sem það hafði ekki séð: það hitti á sigurvegarann í 64,4% leikja en Vegas í 66,2%. Vegas er því nákvæmara, og þess vegna sýnum við línur þess við hliðina.
Staðan í úrslitakeppninni og líkur á sæti þar koma úr 10.000 hermunum á restinni af tímabilinu, á hverjum morgni.
Greinarnar
Upphitun, umfjöllun eftir leiki og vikan í hnotskurn eru skrifaðar með aðstoð gervigreindar úr okkar eigin gögnum: úrslitum, tölfræði og spám. Hver tala í texta frá gervigreind er borin saman við gögnin, og ekkert birtist fyrr en ritstjóri hefur lesið það yfir.
Erlendar fréttir eru stuttar íslenskar samantektir með tengli á upprunalegu fréttina. Við birtum aldrei þýddar greinar annarra.
Gögnin
- Leikir, úrslit, Vegas-línur og leikmannatölfræði: nflverse.
- Fréttir: fyrirsagnir úr fréttaveitum ESPN, ProFootballTalk, CBS Sports og Yahoo Sports.
- Saga verðlaunanna: Wikipedia.
Síðan er óháð og tengist hvorki NFL né liðunum. Hún notar sama aðgang og íslenska fótboltasíðan. Prófaðu spáleikinn.